Hvað gerir Jesúbarnið á aðfangadagskvöld? Svarið er í þessari hlýju jólasögu um æskujól á Selfossi, vitringa í hlöðu á bak við blokk, sauðfé í blokkargörðum og feðga sem standa ráðalausir við eldavélina á aðfangadagskvöld á meðan restin af fjölskyldunni liggur í pest. Jólin eru til þess að njóta þess að lesa bækur. Stuttar bækur eru góðar bækur. Hér geturðu eignast stutta og skemmtilega bók og glatt saumaklúbbinn, smíðaklúbbinn, vinkonurnar í vinnunni og alla fjölskylduna með sögu um anda jólanna.
Bókin er ekki komin út. Með því að tryggja þér eintak ertu að hjálpa til við útgáfu jólasögunnar. Það er sannkallaður jólaandi. Dreifum gleðinni!
Við erum að safna loforðum um bókakaup. Tryggðu þér eintak hér. Við sendum þér greiðsluupplýsingar um leið og hillir í útgáfu.
Þessi bók kemur út án hefðbundins forlags. Höfundur gefur hana sjálfur út. Bókin er seld í forsölu og verður prentuð ef næst að selja nægilegan fjölda eintaka.
Brot úr sögunni birtast hér tvisvar í viku fram að útgáfu. Hér koma líka vangaveltur um útgáfuna, um lestur og jólin og alls konar fleira skemmtilegt til að hita upp fyrir hátíðina.
Pöntunin er ekki farin enn. Til að senda hana þarftu að opna póstforritið og senda pöntunina handvirkt. Pósturinn ætti að hafa opnast með öllum upplýsingunum útfylltum. Ýttu þar á Senda.
Ef það gengur ekki geturðu sent skeyti á með nafni, heimilisfangi og því sem þú valdir. Þú getur líka opnað póstinn aftur eða afritað pöntunina hér fyrir neðan.
Við sendum þér greiðsluupplýsingar þegar hillir í útgáfuna snemma í desember.
Ef Jóla-Jón er í nágrenninu kemur hann sjálfur með bókina til þín!
Veldu fleiri eintök eða pakka í reitnum fyrir fjölda, eða skoðaðu hina valmöguleikana.